05maí

það er komið sumar

jæja þá er komið sumar á úlfljótsvatni búið að hleypa vatni á tjaldstæðið og fyrstu tjaldbúarnir eru mættir. Ég er þó ennþá að bíða eftir fyrstu vorboðunum hérna austur, það er sumarstaffið. rakel er ofsaheppinn fær að vera fyrst á staðinn.
roger over and out ofsavondur
05. maí 2007 klukkan 22:09
Örvar Ragnarsson
5 athugasemdir
25apríl

kominn með hænur

jæja þá er hafinn stórbúskapur á úlfljótsvatni með 6 hænuunga
25. apríl 2007 klukkan 18:20
Örvar Ragnarsson
4 athugasemdir
19febrúar

ofsavondur kominn með msn

jæja ég var rosa heppinn lilli opnaði msn fyrir mig svo það er ofsagaman að tala við tölvunna núna

ofsavondur
19. febrúar 2007 klukkan 22:41
Örvar Ragnarsson
5 athugasemdir
03febrúar

ooooooooooooooorússar

þeir unnu okkur líka hvað er að gerast við töpum fyrir öllum ég held að réttast væri að hætta þessari vitleysu.

ooooooooofsavondur
03. febrúar 2007 klukkan 00:14
Örvar Ragnarsson
5 athugasemdir
31janúar

Danir oooooooooooooooooooooo

ekki nógu og gott þetta með Danina. Við eigum hálft landið og síðan dirfast þeir að vinna okkur í handbolta. Ég legg til að við setjum verði við allar þessar verslanir og neitum dönum um að koma þar inn. þessu er sérstaklega beint til þín Elna
oooooooooooooooooooooOfsavondur
31. janúar 2007 klukkan 16:26
Örvar Ragnarsson
2 athugasemdir
31janúar

sjáðu nú til

rakel ég mundi eftir að blogga tvisvar í janúar.(ofsaklár enginn sem hjálpaði mér)
31. janúar 2007 klukkan 16:22
Örvar Ragnarsson
1 athugasemd
31janúar

Hellaferð annað kvöld

jæja Ofsavondur hér

Nú klárum við myndbandið í frábærri hellaferð þar sem farið verður í Tanngarðshelli á fimmtudaginn 1 feb.
Allir að mæta búnir til þess og muna svo eftir vasaljósi

Ofsavondur
31. janúar 2007 klukkan 16:20
Örvar Ragnarsson
Engin athugasemd
24janúar

eitt gleymdist

búinn að ná brúnu kanínunni en sú svart er ennþá laus en ég næ henni næst þegar ég sé hana.
24. janúar 2007 klukkan 03:46
Örvar Ragnarsson
4 athugasemdir
24janúar

gleðilegt ár

jæjæ Rakel

ég er sestur fyrir framan tölvuna að útbúa nýja færslu (bara fyrir þig)

Það hefur margt gerst síðan síðast búinn að fara til Danaveldis, Sviss (bara 15 mín og einn kaffi) og Ítalíu að heimsækja Gabriele. Þar var ofsagott að koma pínulítill bær þar sem allir tala talibalínsku en mitt tungumál virkaði (hummm).

Af Úlfljótsvatni er það helst að fredrik, jose og lolek eru farnir og í staðinn eru komnir jesus, paula, johanna og mathew. Síðan skömmusíðar birtist stór maður frá Póllandi kallaður laurensjus og er alltaf ofsavondur. (alveg eins og ég hlítur að vera góður maður) hlakka til að hitta alla þegar kemur sumar, þetta getur verið svolítið tómlegt á þessum tíma ársins. Annars erum við Kolli alltaf við ef einhverjum ditti til hugar að kíkja í heimsókn og aldrei að vita nema að það væri til kaka ef við vissum um gesti á derð.

Ofsavondur
24. janúar 2007 klukkan 03:44
Örvar Ragnarsson
2 athugasemdir
28nóvember

næsti fundur

best að nota tækifærið og minna á að næsta fimmtudag 29 nóv á að mæta niður í hjálparsveitaskemmu þar sem Ragna og Elvar ætla að kenna eitthvað klifurbrass úff úff ofsalofthræddur.
kv. Örvar
28. nóvember 2006 klukkan 02:39
Örvar Ragnarsson
6 athugasemdir

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...